Forsíða
From Ljoswiki
| ||||||
|
Velkomin/n á þessa systursíðu ljósmyndakeppni.is sem að byggir á hugmyndafræði wikipediu og er einnig keyrt á svipuðu vefkerfi.
Ljósmyndakeppni.is hefur skapað sér sess sem eitt virkasta samfélag ljósmyndara á Íslandi. Þar er að finna áhugamenn, atvinnuljósmyndara og svo einnig byrjendur sem eru að fikra sig áfram í ljósmyndun. Ætlunin er að þessi síða geti hjálpað, ekki bara byrjendum, heldur einnig atvinnu- og áhugamönnum við að læra af hverjum öðrum og að bæta við þekkingu sína í ljósmyndum. Til þess að það verði af veruleika þurfa allir að leggja sitt að mörkum og deila því þekkingu sinni hér á þessu vefsetri.
Ljóswiki er síða byggð á wiki-kerfinu. Það þýðir að allir geta skrifað greinar og breytt greinum eftir aðra. Aðrir notendur geta líka breytt og bætt greinar eftir þig. Þegar þú byrjar að skrifa nýja grein, þá athugar þú fyrst hvort að svipuð grein sé til með því að leita að henni. Ef að engin síða finnst getur þú búið til síðu. Athugaðu að síðunni verður gefið heitið sem slegið var inn í leitina. Því er gott að leita fyrst að síðunni og slá síðan inn lýsandi titil í leitina. Leitarniðurstöðurnar gefa þér möguleika á að stofna nýja síðu. Til þess að fá nánari lýsingu á því hvernig á að stofna nýja síðu; smelltu þá hér.
|
| |||||
|
|
||||||

